top of page

60 herbergja hótel í hjarta Borgarfjarðar

Viðtal frá 2019


Nýjasta hótelið á Vesturlandi er á Varmalandi í Stafholtstungum í Borgarfirði, í húsi sem upphaflega var byggt undir starfsemi Húsmæðraskólans á Varmalandi sama ár og síðari heimsstyrjöldinni lauk. Á síðustu fimm árum hefur húsið verið stækkað og endurbætt fyrir hundruði milljóna króna. Skólahald í húsmæðraskólanum lagðist af seint á níunda áratugnum og eftir það var húsið í ýmissi tilfallandi notkun. Meðal annars var rekið þar sumarhótel og skólasel frá grunnskólanum á staðnum þegar nemendur voru þar flestir á uppgangsárum Háskólans á Bifröst. Árið 2015 seldi Borgarbyggð hús fyrrum húsmæðraskólans fyrirtækinu Iceland Incoming ehf. sem hóf í kjölfarið umfangsmiklar endurbætur og stækkun á húsinu. Grafið var út úr kjallarahæð, miklar breytingar gerðar á húsaskipan innanhúss og viðbygging byggð við enda hússins og hæð að hluta þar sem veislusal vantaði til að þjóna nýjum þörfum hótels. Þetta metnaðarfulla verkefni fór á endanum í þrot þegar breytingar voru vel á veg komnar. Keyptu núverandi eigendur, viðskiptafélagarnir Þórir Garðarsson og Sigurdór Sigurðsson hjá Grayline Iceland, húsin haustið 2018. Fengu þeir landslagsarkitekt til að hanna lóð umhverfis húsið. Lóðin var tekin niður, rúmgóð bílastæði gerð og aðkoman að húsinu þannig bætt. Á þeirra vegum er nú búið að ljúka framkvæmdum og búið að opna glæsilegt 60 herbergja heilsárshótel.

Blaðamaður Skessuhorns kíkti í síðustu viku í heimsókn á hótelið og ræddi við Helenu Vignisdóttur hótelstjóra. Hún er bjartsýn á hótel- og veitingarekstur á þessum stað. Hótelið sé vel í sveit sett, þar er kyrrlátt og fallegt, en þó stutt í allar áttir. Útsýni af nýjum veitingasal á þriðju hæð er stórbrotið þaðan sem fjallahringur héraðsins nýtur sín vel.



Miðsvæðis í héraðinu


Aðspurð segist Helena í upphafi samtals okkar að hún hafi ekki haft neina tengingu við Borgarfjörð áður en hún tók þetta starf að sér. Á Varmalandi hafi henni þó strax farið að líða vel. Sjálf er hún menntuð í ferðamálafræðum í Danmörku og starfsreynsla hennar fram að þessu hefur einkum verið hjá ferðaskrifstofum og við hótelrekstur. „Það sem mér fannst strax heillandi við Varmaland var hversu staðurinn og húsin taka vel á móti fólki þegar ekið er hingað heim. Varmaland er í rauninni skjólsæl og falin perla milli fallegra klettabelta. Frá húsunum er fallegt útsýni þar sem þau standa fremur hátt í landinu. Þá er Varmaland í raun mjög miðsvæðis, á krossgötum til allra átta. Héðan er stutt í ýmsa afþreyingu í uppsveitum Borgarfjarðar, en það er einnig stutt í Borgarnes og á höfuðborgarsvæðið. Sem dæmi er ég einungis klukkutíma og korter heiman frá mér í Hafnarfirði og hingað í vinnuna. Ég er ekki í vafa um að orðspor okkar í framtíðinni mun skapast af kyrrðinni sem hér ríkir, náttúrufegurðinni, sundlauginni og annarri aðstöðu. Útsýnið frá nýja veitingastaðnum á þriðju hæð er engu líkt. Saman við góða matarupplifun ætlum við að gera gestum heimsókn hingað ógleymanlega,“ segir Helena.


Staðurinn greyptur í huga margra


Hótel Varmaland er búið öllum helstu nútímaþægindum og getur að sögn Helenu tekið allt að 138 í gistingu. Hótelið var formlega opnað gestum 19. júlí í sumar. Reyndar höfðu þá mánuði áður 60 ára Varmalandsmeyjar fengið að halda nemendamót sitt á staðnum þar sem rifjuð voru upp gömul kynni úr námi og leik. „Það er svo gaman að því hversu margir eiga ljúfar minningar héðan frá Varmalandi. Bæði „stelpurnar“ sem hér stunduðu nám en ekki síður ungu mennirnir sem gerðu hosur sínar grænar fyrir þeim á sínum tíma. Ég hef fundið vel hversu sterkar rætur þessi skóli hefur í hugum margra og minningar héðan eru greinilega margar. Fólk hefur einnig lýst ánægju sinni með að húsin séu komin í notkun að nýju,“ segir Helena.


Styrkleiki að geta tekið stóra hópa


Aðspurð segir hún að vel hafi gengið að manna störf á hótelinu. „Við erum með um tuttugu starfsmenn, mest Íslendinga. Við hlið mér starfar Dóra Takefusa sem aðstoðar hótelstjóri og til okkar hefur gott fólk ráðist til starfa. Það kom mér á óvart hversu vel gekk að ráða í störfin. Um tíu manns eru í fullu starfi og tíu eru hlutastarfsmenn, meðal annars nokkrir nemendur við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri sem taka vaktir samhliða því að stunda nám.“ Helena segir að það líti vel út með bókanir. Nú í haust hófst af krafti markaðssetning sem felst meðal annars í að láta erlendar og íslenskar ferðaskrifstofur og íslensk fyrirtæki vita af þessum nýja möguleika í gistingu og mat í Borgarfirði. Fullbókað er margar helgar og segir Helena ánægjulegt að sjá hversu margir íslenskir hópar eru að boða komu sína. „Það er styrkleiki okkar að geta tekið stóra hópa t.d. í ráðstefnur, árshátíðir, afmæli og allskyns viðburði. Við njótum einnig góðs af því að hér er bæði sundlaug og Þinghamar er stórt félagsheimili í göngufæri frá okkur. Við erum í afar góðu sambandi við Guðmund Finnsson húsvörð sem er einkar lipur og frábær maður í samskiptum. Sundlaugin hefur verið opnuð þegar við höfum óskað eftir því og félagsheimilið er hægt að leigja bæði fyrir fjölmennustu veislurnar, ráðstefnur og slíkt. Sundlaugin á Varmalandi gegnir auk þess lykilhlutverki í að bæta upplifun gesta sem hér dvelja,“ segir hún.




Calor merkir varmi


Á efstu hæð hótelsins er glæsilegur veitingastaður með sæti fyrir 140 gesti og útsýni til allra átta. Auk þess er sérsalur sem hægt er að loka af fyrir smærri hópa. Veitingastaðurinn hefur fengið nafnið Calor Restaurant. Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð sem er innifalið í gistingunni, árstíðatengdan „a la carte“ matseðil og hópamatseðil. Kokkarnir á Calor vinna í miðju rýmisins, í opnu eldhúsi, og geta gestir fylgst með þeim að störfum á milli þess sem notið er útsýnis í gegnum glerveggi sem þekja þrjár hliðar veitingasalarins. Helena segir að nafnið á veitingastaðnum sé latneskt og merki hita eða varma og tónar því vel við gufuna sem leggur frá hvernum á Laugalandi, skammt fyrir neðan hótelið. „Útlendingar tengja vel við þetta nafn, en mörgum Íslendingum finnst það framandi í fyrstu. Við höfum hér tvo kokka, Íslending og Pólverja, sem laða fram það besta í matargerð. Við höfum veitingastaðinn opinn á kvöldin frá klukkan 18:30-21:30 og hingað getur fólk komið til að njóta. Sveitungar eru farnir að koma og prófa matinn hjá okkur og nú erum við farin að kynna jólahlaðborð sem verða alla föstudaga og laugardaga frá 15. nóvember til 14. desember. Það lítur mjög vel út með bókun í þau en ég hvet fólk til að leita upplýsinga og skipuleggja ferð til okkar,“ segir Helena.

Helena hótelstjóri segist mjög bjartsýn á framhaldið á Hótel Varmalandi nú fjórum mánuðum eftir að það var opnað formlega. „Ég finn vel að þetta hótel býður upp á ótrúlega skemmtilega möguleika jafnt fyrir Íslendinga sem erlenda ferðamenn - og hvet fólk til að hafa samband ef það langar að prófa nýja upplifun í mat eða gistingu.“



Recent Posts

See All
bottom of page